Hraðakstur á Eiðsgranda

Brot 90 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda eftir hádegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt að Keilugranda. Á einni klukkustund fóru 392 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók var mældur á 88, samkvæmt frétt frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert