Varað við hálku

Víða er hálka á vegum.
Víða er hálka á vegum. mbl.is/RAX

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar ökumenn við mikilli hálku á götum höfuðborgarsvæðisins. Bent er á að hálkan sé bæði lúmsk og leyni á sér.

Þó stofnæðar hafi verið saltaðar þá eru flestar minni umferðaræðar ósaltaðar. Margir ökumenn treysta því á að saltað hafi verið allstaðar en þegar ekið er af saltaðari götu inn á ósaltaða götu þá er voðinn vís, segir lögregla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert