Fasteignakaupsamningum fækkar

Alls var  72 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni, sem er að líða. Að meðaltali hefur 120 kaupsamningum verið þinglýst í hverri viku á síðustu 12 vikum.

Heildarveltan var 2134 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29,6 milljónir króna. Að meðaltali hefur vikuvelta verið 4151 milljón á undanförnum 16 vikum og meðalupphæð á samning verið 34,7 milljónir.

Í vikunni 4 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Var heildarveltan 50 milljónir króna og meðalupphæð á samning 12,6 milljónir króna. Á síðustu 16 vikum hefur að meðaltali 50 samningum verið þinglýst, meðalvikuveltan verið 218 milljónir og meðalverð 22,2 milljónir.

Á Árborgarsvæðinu var 7 kaupsamningum þinglýst. Heildarveltan var 123 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,6 milljónir króna.  Á síðustu 16 vikum hefur að meðaltali 10 samningnum verið þinglýst á viku, veltan hefur að meðaltali verið 208 milljónir og meðalupphæð á samning 20,4 milljónir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert