Áfram í gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að tveir Litháar, sem héraðadómur dæmdi í 5 ára fangelsi fyrir nauðgun, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í Hæstarétti í máli þeirra, þó ekki lengur en til 9. maí.

Mennirnir voru handteknir í nóvember og hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan. Þeir voru í héraðsdómi fundnir sekir um að nauðga konu í miðborg Reykjavíkur en hafa áfrýjað þeim dómi til Hæstaréttar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert