Umhverfisráðherra heimsækir Sól á Suðurlandi

Kjartan Ágústsson hjá Sól á Suðurlandi afhendir Þórunni áskorun til …
Kjartan Ágústsson hjá Sól á Suðurlandi afhendir Þórunni áskorun til stjórnvalda.

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra heimsótti heimamenn við Þjórsá í Skaftholti í
Skeiða- og Gnúpverjarheppi í vikulokin. Fundurinn með ráðherranum gaf heimamönnum
nýja trú á  að leikreglur lýðræðisins verði virtar í samskiptum
Landsvirkjunar við almenning á Íslandi og landeigendur við Þjórsá, segir í tilkynningu frá samtökunum Sól á Suðurlandi.

Þórunni var afhent á fundinum erindi sem unnendur Þjórsár sendu inn á Búnaðarþing í vikunni. Umhverfisráðherra var einnig afhent áskorun til stjórnvalda sem samþykkt var á fjölmennum fundi í Fríkirkjunni fyrir skemmstu.

Í fréttatilkynningu frá Sól á Suðurlandi í morgun segir ennfremur:

„Þjórsá verður ekki virkjuð í byggð!  Þetta kom fram í vikunni þegar
Landsvirkjunn kastaði sauðargærunni. Fyrirtækið neitar að selja netþjónabúi
á Suðurnesjum orku nema frá Þjórsárvirkjunum.“

„Þetta er gert til þess að setja þrýsting á stjórnvöld til að leyfa
Landsvirkjun að fara sínu fram gegn vilja heimamanna við Þjórsá. Af því að
orkan verði nýtt í græna starfsemi. Landsvirkjun gleymir að geta þess að
orkan fyrir netþjónabúið er til og það þarf ekki að virkja Þjórsá.“

„Mörður Árnason þingmaður tók rösklega á þessu máli á Alþingi í vikunni.
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Björgvin G. Sigurðson
viðskiptaráðherra lýstu bæði andstöðu við eignarnám og virkjanir í Þjórsá,
þrátt fyrir nýjasta útspil Landsvirkjunar.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert