„Getum verið stolt af Íslendingunum“

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mbl.is/Friðrik Tryggvason

„Í samtölum mínum við fulltrúa þeirra mannúðar- og félagasamtaka sem hér eru að störfum kom fram að þeir teldu sig ekki geta starfað í Afganistan ef hér væru ekki alþjóðlegar öryggissveitir,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra en opinber heimsókn hennar til Afganistans hófst í gær.

Spurð hvort sér finnist ógnvekjandi að dvelja í Afganistan á sama tíma og frá landinu berast fréttir af átökum og sjálfsmorðssprengjuárásum svarar Ingibjörg því neitandi. „Auðvitað er maður alveg meðvitaður um að það eru hér hættur sem maður þarf að búa sig undir og reyna að forðast,“ segir Ingibjörg og bætir við að sér finnist aðdáunarverðast að hitta allt það hæfa fólk sem vinni fyrir hin margvíslegu félagasamtök, mannúðarsamtök og ríkisstjórnir, af fúsum og frjálsum vilja af því það hafi svo mikla löngun til þess að sjá breytingar, þ.a. að hlutirnir geti færst til betri vegar í Afganistan.

„Þetta er gríðarlega öflugt, hæft og vel menntað fólk sem ég hitti hér í kvöld. Við getum verið mjög stolt af Íslendingum sem starfa hérna. Ég er mjög stolt yfir því hvað Íslendingar sem eru á okkar vegum hérna eru kraft- og kjarkmikið fólk.“

Á næstu dögum mun ráðherra skoða þau verkefni sem Íslendingar taka þátt í, auk þess að hitta afganska ráðamenn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert