Gullfaxi á Flugsafn Íslands í júní

Hafþór Hafsteinsson og stjórnendur fyrirtæksins Stewart Industries, sem keypti allan …
Hafþór Hafsteinsson og stjórnendur fyrirtæksins Stewart Industries, sem keypti allan Boeing 727 flota UPS pakkaflutningafyrirtækisins. Frá vinnstri; Hafþór, Harry Coffie aðstoðarforstjori, Tom Stewart forstjóri og Ray Ferreira framkvæmdastjóri. mbl.is/pétur p. johnson

Hafist var handa við að skera stjórnklefa Gullfaxa frá búk vélarinnar á flugvellinum í Roswell í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum í vikunni. Vonast er til að fá stjórnklefann til Akureyrar á Flugsafn Íslands í júnímánuði .

Boeing 727-108C, TF-FIE, eða betur þekkt sem Gullfaxi var fyrsta þota Íslendinga og kom hún til landsins í júní 1967. Gullfaxi var í notkun Flugfélags Íslands og síðan Flugleiða/Icelandair frá ársbyrjun 1985. 

Hafþór Hafsteinsson, stjórnarformaður Avion Aircraft Trading, telur það afar mikilvægt fyrir íslenska flugsögu að geta sýnt þennan grip á Flugsafni Íslands.

„Við stóðum frammi fyrir því að vélin yrði brytjuð niður og því var mjög mikilvægt að reyna að bjarga einhverjum hluta af henni til þess að hafa á safninu fyrir norðan,“ sagði Hafþór í samtali við blaðamann á mbl.is.  Ásamt því að sýna stjórnklefann verður hægt að sjá ýmislegt annað í básnum sem tengist sögu vélarinnar, s.s. ljósmyndir, kvikmyndir, módel og fleira.  

Hafþór fór ásamt öðrum til Nýju Mexíkó á flugvöllinn í Roswell og gengið var frá kaupunum. Þar voru gefin fyrirmæli um hvernig vélin ætti að vera skorin og haft var í huga hvernig stjórnklefinn myndi passa í basinn þar sem hann verður sýndur. Á meðan Hafþór var að skoða sig um á flugvellinum í Roswell fann hann fleiri flugvélar sem þjónuðu Flugfélagi Íslands og Loftleiðum. Þar fannst flugvél sem nefnd var Sólfaxi sem var önnur þotan sem Flugfélag Íslands tók í notkun. Einnig fannst Douglas DC-8-63CF TF-FLB vél sem kölluð var Snorri Þorfinnsson.

Hafþór lítur þó á að Gullfaxi sé merkilegasti fundurinn. „Gullfaxi er svona táknmynd að því leytinu til að hún er fyrsta þotan. Hún er frumkvöðullinn,” sagði hann.  Hafþór telur að stjórnklefinn muni vekja lukku á safninu og segir hann verða mikilvægan hluta af safninu.  

Icelandair greiðir kostnað við kaupin á stjórnklefanum, sem er um 35.000 dalir eða rúmlega tvær og hálf milljón íslenskra króna. Eimskip gefur svo flutninginn heim og til Akureyrar.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert