Flugfélag Íslands leigir Fokker 50 vél til Air Baltic

Flugvél af gerðinni Fokker 50 verður leigð til Air Baltic …
Flugvél af gerðinni Fokker 50 verður leigð til Air Baltic flugfélagsins. Jim Smart

Flugfélag Íslands og lettneska flugfélagið Air Baltic hafa skrifað undir
viljayfirlýsingu um leigu á einni Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands til
Air Baltic, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Flugfélagi Íslands.
 
Þar kemur fram að afhending vélarinnar mun fara fram í byrjun september og
mun Air Baltic hafa hana fram í miðjan maí á næsta ári eða í um 9 mánuði.
Vélin verður því tilbúin til notkunar fyrir háannatímabil í rekstri
Flugfélags Íslands sem er frá miðjum maí fram í september.

Þá segir að stefnt sé að því að vinna að frekara samstarfi félaganna þar sem mismunandi
árstíðasveiflur í rekstri þeirra geta gefið af sér ákveðin samlegðaráhrif.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert