Athugar stöðu fólks með banvæna sjúkdóma

Jóhanna Sigurðardóttir, ráðherra félags- og tryggingamála, segir allrar athygli verða þá hugmynd Kristínar Sólveigar Bjarnadóttur og Sigríðar Halldórsdóttur að fólk með ólæknandi og banvæna sjúkdóma fái sérstakan þjónustufulltrúa sem gætir hagsmuna þess og réttinda.

Sagt var frá hugmynd Kristínar og Sigríðar í Morgunblaðinu í gær en þær höfðu gert rannsókn sem sýndi að fólk með ólæknandi og banvæna sjúkdóma kvartar undan erfiðri glímu við kerfið, sem síðan hefur mikil neikvæð áhrif á lífsgæði þess, sem þegar eru skert.

„Ég ætla að biðja trygginga- og velferðarsvið hjá mér að skoða þetta mál í samráði við Tryggingastofnun, og fá þeirra hugmyndir um hvernig best megi standa að þessu,“ segir Jóhanna. „Margir sem eru með ólæknandi og banvæna sjúkdóma geta hreinlega ekki séð sjálfir um sín mál. Þeir hafa jafnvel ekki krafta til að leita réttar síns í opinberu kerfi sem getur verið svifaseint og þunglamalegt.“

Jóhanna nefnir að margar stofnanir kunni að þurfa að koma að lausn vandans, og nefnir auk Tryggingastofnunar félagsþjónustu sveitarfélaganna og Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, enda hvíli fjárhagslegir erfiðleikar oft mjög þungt á þessum hópi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert