Fagnar úrskurði Skipulagsstofnunar

Álfheiður Ingadóttir, þingkona Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs segir í tilkynningu, að það sé fagnaðarefni að Skipulagsstofnun hafi gefið út álit þess efnis að bygging Bitruvirkjunar væri ekki viðunandi vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu.

„Ég held að flestir íbúar á Suðvesturhorninu séu sammála þessu áliti og ég vona að Orkuveita Reykjavíkur og Borgarstjórn Reykjavíkur falli frá fyrirætlunum um Bitruvirkjun. Það verður að hafa í huga að þó Bitruvirkjun verði ekki að veruleika er engu að síður nauðsynlegt að setja reglur sem skylda orkufyrirtækin að hreinsa brennisteinsvetni úr útblæstrinum" segir Álfheiður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert