Lagt hald á fé og fíkniefni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í gærkvöldi hald á að um 800 grömm af hassi og um 200 þúsund í peningum við húsleit í Breiðholti.
25 ára gamall karlmaður  var handtekinn og verður yfirheyrður í dag vegna málsins.

Annar karlmaður 23 ára var einnig handtekinn en sleppt að lokinni yfirheyrslu.

Við húsleitina naut lögreglan aðstoðar fíkniefnaleitarhunds frá tollgæslunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert