Ofurölvi í sunnudagsbíltúr

mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði síðdegis í dag afskipti af ökumanni sem tilkynnt hafði verið um að væri drukkinn.

Þegar til kom reyndist maðurinn ofurölvi við aksturinn, og þar að auki próflaus, þar sem hann hafði þegar verið sviptur ökuréttindum.

Maðurinn var færður til blóðsýnatöku og síðan látinn laus, en bíllyklana fékk hann ekki aftur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert