Stunginn með hnífi í miðbænum

Karlmaður var handtekinn á sjöunda tímanum í morgun eftir að hann særði annan mann með hnífi í miðborg Reykjavíkur. Að sögn lögreglu særðist maðurinn á hálsi, en hann er þó ekki í lífshættulega slasaður.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu ógnaði maðurinn fólki með hnífi úti á götu. Kallað var eftir sjúkrabíl og aðstoð lögreglu sem handtók manninn. Hann gistir nú fangageymslur lögreglu.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert