Veruleg umhverfisáhrif af rannsóknarholu í Gjástykki
Skipulagsstofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu, að fyrirhuguð borun rannsóknarholu í Gjástykki norður af Kröflu kunni að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því háð mati á umhverfisáhrifum.
Byggir stofnunin þessa niðurstöðu á því, að um er að ræða framkvæmd sem kunni að hafa umtalsverð neikvæð og varanleg áhrif á jarðmyndanir og landslagsgildi svæðis sem sé lítt snortið af mannvirkjum. Þá telur stofnunin ljóst að verndargildi háhitasvæða aukist eftir því sem fleiri svæði eru tekin undir orkuvinnslu og aðra mannvirkjagerð.
Framkvæmdin er á svæði sem nýtur sérstakrar verndar samkvæmt lögum um náttúruvernd. Hefur Umhverfistofnun gert tillögur til umhverfisráðherra um að svæðið skuli undirbúa til friðlýsingar vegna mikils verndargildis, einkum vegna jarðmyndana, landmótunar, s.s. eldvirknisprungna og gliðnunar, landslags, útivistar og fræðslugildis.
Skipulagsstofnun segir að líkur séu á að í Gjástykki sé háhitasvæði og virkjanlegur jarðhiti og því eðlilegt, í ljósi reynslu, að mjög fljótlega eftir borun fyrstu rannsóknarholu verði kynnt áform um frekari boranir sem kunni að hafa í för með sér aukin neikvæð umhverfisáhrif.
Rannsóknarholan í Gjástykki er liður í könnun á stærð jarðhitasvæða á Norðausturlandi og grundvöllur ákvörðunar um hvort vænlegt þyki að ganga til samninga um orkusölu til álvers á Bakka við Húsavík.
Innlent »
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. júlí 2008, Innlent Engin leið að kæra ákvörðun
- Þriðjudagur, 23. desember 2008, Innlent Umhverfisáhrif af rannsóknarborun metin
- Fimmtudagur, 17. júlí 2008, Innlent Landsvirkjun unir ákvörðun Skipulagsstofnunar
- Föstudagur, 19. desember 2008, Innlent Rannsóknarboranir ekki metnar með áhrifum virkjunar
- Fimmtudagur, 10. júlí 2008, Innlent Sérstakt og aftast í röð virkjanakosta
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































