Vilja styrkja meirihlutann í Reykjavík

Núverandi meirihluti er myndaður af D og F-lista.
Núverandi meirihluti er myndaður af D og F-lista. Árvakur/Árni Sæberg

Fullyrt var í fréttum Sjónvarpsins, að sjálfstæðismenn vilji styrkja meirihlutasamstarfið við F-lista í borgarstjórn Reykjavíkur og fá Framsóknarflokkinn inn í samstarfið. Það telji framsóknarmenn af og frá og eigi flokkurinn að taka upp samstarf við D-lista verði Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, að víkja.

Grunnt hefur verið á því góða milli Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa framsóknarmanna, og Ólafs F. Magnússonar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert