Hestur hljóp á mann

mbl.is/Július

Maður slasaðist þegar hestur hljóp á hann og felldi við Hnausa hjá Vatnsdalshólum í dag.  Að sögn lögreglunnar á Blönduósi stóð maðurinn við girðingu þegar hesturinn hljóp á hann.  Maðurinn var fluttur á sjúkrahús en upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert