Þjófar höfðu kex og gos upp úr krafsinu

mbl.is/Július

Tveir unglingspiltar voru handteknir á Akureyri í nótt eftir að hafa brotist inn á fimm stöðum í bænum, m.a. á fótboltavelli og í kexverksmiðju. Að sögn lögreglu höfðu þeir haft eitthvað af gosi og kexi upp úr krafsinu.

Þá var tveim bílum og stolið á Akureyri í nótt, segir lögreglan. Annar er fundinn en hinn ekki kominn í leitirnar. Sá sem enn er saknað er svartur, af KIA-gerð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert