Átta teknir fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut

mbl.is/Július

Átta ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í dag þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum mældust þeir á 118 til 136 km/klst.  Þá var einn þessara ökumanna grunaður um ölvun við akstur og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert