BHM fagnar stýrivaxtalækkun

Seðlabanki Íslands lækkaði stýrivexti og fagnar miðstjórn BHM því.
Seðlabanki Íslands lækkaði stýrivexti og fagnar miðstjórn BHM því. mbl.is/Ómar

Miðstjórn Bandalags háskólamanna (BHM) telur lækkun Seðlabanka Íslands á stýrivöxtum vera fyrsta skrefið í átt að bættum hag almennings í landinu.

Í tilkynningu til fjölmiðla segir:

„Á fundi miðstjórnar BHM miðvikudaginn 15. október 2008 var eftirfarandi ályktun samþykkt:
 
Miðstjórn BHM fagnar ákvörðun Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti sem fyrsta skrefi í aðgerðum til að bæta hag almennings í landinu."


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert