Komnir á rétta braut

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. mbl.is/G.Rúnar

„Þeir eru þá komnir á rétta braut,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, spurður um viðbrögð við stýrivaxtalækkun Seðlabanka Íslands sem var tilkynnt í morgun. „Þetta er fyrsta skrefið og svo eiga þeir eftir að stíga fleiri skref.“

Stýrivextirnir mælast nú vera 12% eftir lækkunina, sem nam 3,5 prósentum. „Ég hefði viljað sjá þá fara lengra, og þeir eiga eftir að fara lengra,“ segir hann.

Vilhjálmur segist hins vegar fagna þessu skrefi sem sé myndarlegt. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert