Harður árekstur

Harður árekstur varð á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs á sjötta tímanum í dag. Jepplingur og léttur fólksbíll lentu saman. Þrír voru fluttir á slysadeild, ekki alvarlega slasaðir. Þrír sjúkrabílar voru á vettvangi auk bifreiðar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert