Enn fækkar farþegum í Keflavík

Farþegum, sem leið áttu um Keflavíkurflugvöll í september, fækkaði um 8,2% miðað við sama mánuð í fyrra. Fram kemur á vef Leifsstöðvar, að farþegum til og frá Íslandi fækkaði um rúm 6% milli ára, en farþegum, sem millilentu hér fækkaði um rúm 19%.

Í september sl. fóru rúmlega 172 þús. farþegar um flugvöllinn, samanborið við rúmlega 187 þúsund í sama mánuði í fyrra. Fyrstu 9 mánuði ársins fóru rúmlega 1.666 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll en rúmlega 1.733 þúsund sömu mánuði í fyrra. Þetta eru um 3,9% færri farþegar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert