Bankar frysti myntkörfulán

Ríkisstjórnin hefur beint þeim tilmælum til hinna nýju ríkisbanka að þeir frysti afborganir og vexti af myntkörfulánum tímabundið, sé þess óskað, þar til eðlileg virkni kemst á gjaldeyrismarkaðinn. Ennfremur að ekki verði sérstakrar greiðslu krafist af viðskiptavinum vegna þessa. 

Hefur viðskiptaráðuneytið  í dag rætt við alla bankastjóra hinna nýju ríkisbanka til að tryggja að þjónusta við viðskiptavini bankanna sé í samræmi við tilmæli ríkisstjórnarinnar um frystingu myntkörfulána.

Mælst er til að bankarnir krefji viðskiptavini ekki um frekari tryggingar né láti nýtt greiðslumat fara fram vegna tímabundinnar frystingar á myntkörfulánum.

Þá vekur ráðuneytið athygli viðskiptavina nýju bankanna á því að þeir geti óskað eftir frystingu á myntkörfulánum, óháð efnahag sínum.

Í tilmælunum var því einnig beint til ríkisbankanna að þeir bjóði viðskiptavinum sínum í greiðsluerfiðleikum upp á sams konar úrræði og Íbúðalánasjóður hefur gert. Er þess vænst að önnur fjármálafyrirtæki veiti sömu fyrirgreiðslu.

Fjármálaráðherra mun á næstu dögum leggja fram á Alþingi frumvarp til breytingar á lögum um stimpilgjöld, þar sem lagt er til að skjöl sem gefin eru út á tímabilinu frá gildistöku laganna til 1. janúar 2009 og fela í sér breytingar á skilmálum á fasteignaveðskuldabréfum einstaklinga verði undanþegin greiðslu stimpilgjalda.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert