Áframsendi gagnrýni á Valgerði

Bjarni Harðarson bað um að bréfið yrði sent nafnlaust á fjölmiðla. stækka

Bjarni Harðarson bað um að bréfið yrði sent nafnlaust á fjölmiðla. mbl.is/Ómar

Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokks, sendi í kvöld öllum fjölmiðlum í tölvupóstafriti bréf tveggja flokksbræðra sinna þar sem þeir gagnrýna Valgerði Sverrisdóttur, varaformann flokksins og fyrrverandi viðskiptaráðherra, harðlega fyrir þátt hennar í einkavæðingu bankanna á sínum tíma og afstöðu til Evrópusambandsaðilar.

Í orðsendingu til aðstoðarmanns síns biður hann um að hann sendi bréfið fjölmiðlum úr nafnlausu tölvupóstnetfangi og má af því ráða að bréfið hafi farið fyrir mistök úr tölvupóstfangi Bjarna beint á fjölmiðla. Í öðrum tölvupósti sem sendur var fjölmiðlum kortéri síðar biður hann um að horft sé fram hjá fyrri sendingu hans.

Inntur eftir því hvers vegna hann hafi beðið aðstoðarmann sinn um að senda bréfið nafnlaust til fjölmiðla segir Bjarni það hafa verið samblöndu af hvatvísi og hálfkæringi. „Við höfðum nú rætt um þetta bréf í síma rétt áður og það var nú ekki staðfastur ásetningur að þetta yrði sent heldur sendi ég þetta og hringdi svo í hann og hafði ekki gert mér grein fyrir mistökunum þá.“

Hann segist hafa  í símtalinu beðið aðstoðarmann sinn um að hinkra með sendinguna en þá hafi komið í ljós að það væri of seint. „Þetta er gert í mikilli hvatvísi og ég bið bæði bréfritarana og Valgerði velvirðingar á því.“ 

En telur Bjarni ekki ódrengilegt af sinni hálfu gagnvart Valgerði að óska eftir því að bréfið sé sent nafnlaust á fjölmiðla?

„Það er alveg rétt mat hjá þér, enda endurskoðaði ég þá hugmynd strax í símtali við minn aðstoðarmann á eftir.“ 

Hvað með flokkinn, það hefur ekki beinlínis verið lygnt í þingflokk Framsóknarflokksins á undanförnum misserum?

„Það hefur verið mjög mikill ágreiningur í flokknum um Evrópumálin,“ svarar Bjarni. „Það endurspeglast í skrifum þeirra félaga fyrir norðan. Það er ekkert nýtt við það.“

Bréfið

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »
Héraðsdómur Suðurlands.

Alsírsku drengirnir áfrýja

16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði - fæst með eða án þakefnis. Verð kr. 374.90...
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Birkiplöntur með hnaus verð frá 2000 kr stk. Opið virka daga kl.13-18 , laugard....
Yaris T-Sport 2007!!!!
Ek. 64 þús. 17'' felgur. Filmur. Xenon. Nýir diskar og klossar. Eins og nýr! Mjö...
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
 
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...