Selja þú gamall gull?

Svo mikið er víst að hið danska fyrirtæki vill kaupa …
Svo mikið er víst að hið danska fyrirtæki vill kaupa þinn gamall gull. mbl.is

Stórskuldugri íslenskri þjóð berast nú gylliboð úr ýmsum áttum, um hagstæð kjör á meintri brunaútsölu eigna. Eitt slíkt gylliboð er mikið auglýst í tölvupóstkerfi Google, Gmail, sem þúsundir íslendinga nýta sér. Danskt fyrirtæki býðst til að losa Íslendinga við skartgripi úr eðalmálmum.

„Selja þú gamall gull. Við kaupa þinn gamall gull. Fá the bestur verð hér,“ segir í auglýsingunni góðu, sem hefði að ósekju mátt fá dálítinn yfirlestur íslenskufræðings.

Merkingin kemst reyndar óbrengluð til skila, en óvíst er hvort Íslendingar eru í slíkum kröggum staddir að gullið streymi nú til Danaveldis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert