Bensín lækkar á ný

N1 og Olís hafa lækkað bensínverð á ný en félögin hækkuðu verðið um 4 krónur lítrann fyrr í vikunni. Hins vegar hefur Skeljungur, sem ekki hækkaði bensínverðið, hækkað verð á dísilolíu um 6 krónur lítrann og er nú með svipað verð og hin félögin tvö, rúmar 182 krónur. Lítraverðið á bensíni er einnig svipað hjá öllum félögunum: rúmar 154 krónur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert