„Eftir öðru að þjóðin fái upplýsingar með þessum hætti“

Steingrímur J. Sigfússon. stækka

Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Ómar

mbl.is Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna fengu í síðustu viku afrit af yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, en DV birti í morgun skjalið í heild á vefsíðu sinni.  „Ég hef haft þetta í höndunum sem trúnaðarmál [...]  En úr því þetta er orðið opinbert í DV get ég tjáð mig um það sem þar birtist,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.

Í bréfi íslenskra stjórnvalda kemur m.a. fram að stjórnvöld séu reiðubúin að hækka stýrivexti hér á landi enn frekar, en vextirnar hafa nú verið hækkaðir í 18%.

 „Ég hef kvartað undan því og gagnrýnt mjög harðlega að Alþingi hafi verið sett til hliðar í þessu máli. Ekki einu sinni utanríkismálanefnd hefur fengið að sjá þetta, þótt í trúnaði væri,“ segir hann. Hið sama gildi um önnur gögn vegna fjármálakreppunnar. „Utanríkismálanefnd hefur ekki séð eitt einasta blaðsnifsi. Hún hefur ekki séð skilmálann til IMF, ekki gögn vegna Icesave-deilunnar, ekki bréf sem gengið hafa milli íslenskra og breskra stjórnvalda, ekki séð minnispunkta frá fundum t.d. Björgvins Sigurðssonar með Alistair Darling í september. Ég hef aldrei á mínum ferli séð Alþingi sett jafn harkalega til hliðar og eru þó engin smá mál að ráðast til lykta.“

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna fengu yfirlýsingu stjórnvalda senda í síðustu viku. Steingrímur segir að mjög skýrar óskir um að halda trúnaði „og það hef ég gert. Ég hef ekki einu sinni sagt mínum eigin þingmönnum frá því vegna þess að ég held trúnað þótt aðrir geri það ekki“, segir Steingrímur.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist mjög óhress með að þetta mál hafi ekki verið lagt fyrir þingið. „Þingið á að fá að ræða þessi mál og koma að þeim. Ég er ekki sammála því að stjórnvöld geti sett svona fram þannig að það sé bindandi og þingið verði stimpilstofnun fyrir allt mögulegt sem stjórnvöld senda frá sér.“

Hann vill ekki ræða nánar um efni bréfsins og kveðst eiga von á að forsætisráðherra ræði síðar í dag við formenn stjórnarandstöðunnar, þótt slíkur fundur hafi enn ekki verið boðaður.

Nærtækara að tala um uppgjöf, ósigur eða tap

Steingrímur J. Sigfússon segir ljóst að fyrir helgi hafi verið sett á leikrit. Íslensk stjórnvöld hafi þá þegar verið búin að fallast á að gefast upp í Icesave málinu. „En því er haldið leyndu, væntanlega af hræðslu við mótmælin á laugardaginn var. Þess í stað var kynntur nánast innhaldslaus heimilispakki á föstudaginn til þess að reyna að róa ástandið. Fjölmiðlar, sérstaklega Morgunblaðið og Fréttablaðið ganga í þjónustu við ríkisstjórnina í þessu máli, með ævintýralegum fréttaflutningi um lausn í málinu og samkomulag og annað þvíumlíkt. Og það jafnvel á degi íslenskrar tungu þegar nærtæktara orðalag væri uppgjöf, ósigur eða tap.“

Sjá frétt DV

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Ásdís Ásgeirsdóttir

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Óveður í Oddsskarði

Farþegarnir fluttir á Eskifjörð

21:11 Búið er að aðstoða og flytja burt alla farþega rútunnar sem valt í Oddsskarði um áttaleytið í kvöld. Í rútunni voru átta starfsmenn álversins á Reyðarfirði á leið heim til sín. Þeir voru fluttir á heilsugæsluna á Eskifirði til aðhlynningar en enginn var alvarlega slasaður. Meira »
Oddsskarð.

Átta manns í rútu sem valt

20:40 Átta manns voru um borð í lítilli rútu sem fór út af veginum í Oddsskarði rétt fyrir klukkan 20 um kvöld. Veginum er nú lokað. Ekki er vitað til að neinn hafi slasast alvarlega, en björgunarsveitir eru að flytja fólkið úr skarðinu. Meira »

Flutningabíll valt á Fjarðarheiði

Á Fjarðarheiði.
20:37 Stór flutningabíll með eftirvagn, s.k. trailer, valt á Fjarðarheiði ofan Seyðisfjarðar í vonskuveðri um sjöleytið í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum voru tveir menn í bílnum og sat annar þeirra fastur. Meira »

Oddsskarð lokað vegna slyss

20:22 Vegurinn um Oddsskarð er lokaður vegna umferðaróhapps, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.  Meira »

Styttist í hrognafrystingu

Loðnuhrognavinnsla hjá HB Granda Akranesi
20:02 Góður kraftur hefur verið í loðnuveiðum síðustu tvær vikur og nú styttist í að hrognafyllingin í loðnunni og þroski hrognanna gefi tilefni til að hægt verði að hefja hrognatöku og –frystingu. Meira »

Lést í bílslysi í Tansaníu

Gunnar Örn Gunnarsson
20:29 Íslenski pilturinn sem lést í bílslysi í Tansaníu síðastliðinn laugardag hét Gunnar Örn Gunnarsson. Hann bjó í Helsingborg í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni. Meira »

Perlan fái hlutverk við hæfi myndskeið

Perlan1
20:15 Hugmyndir um að Perlan hýsi Náttúruminjasafn Íslands, sem lög gera ráð fyrir að rísi, hafa hlotið mikinn byr að undanförnu. Árni Hjartarson, formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags, segir að samskipti við stjórnarformann OR hafi verið afar jákvæð og að margir hafi tekið undir hugmyndina. Meira »

Skafrenningur á Austurlandi

19:03 Hríð á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Meira »

Fundaði með fulltrúum sveitarfélaga

Jóhanna Sigurðardóttir
19:01 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með fulltrúum forsvarsmanna landhlutasamtaka sveitarfélaga. Ræddi hún á fundinum um hvaða kostir eru í stöðunni varðandi verkefni á landsbyggðinni. Meira »

Vilja lækka olíugjald

18:32 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja í dag fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að olíugjald verði lækkað umtalsvert.  Meira »

Leitar hjálpar vegna Aratúns-dóms

Aratúnið Málið spratt upp eftir skrif um Aratúnsfjölskylduna á bloggsíðu.
18:33 „Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli vegna s.k. Aratúnsmáls. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð Meira »

Unglingspilts enn leitað

Guðmundur Árnason.
18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi þann 17. febrúar sl. Meira »

Ósáttur við að vera þjófkenndur

Frá Landmannalaugum - mynd úr safni
18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem voru í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Í miðbænum í Reykjavík
Frábær gisting í miðbænum nokkrir lausir dagar. Vetrarafsláttur. Kíkið á vefin...
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005 , ekið 4.700 km. , er á nýjum Bigho...
Heimagisting Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á góðum stað á Akureyri. Einungis er um að ræða g...
Taktu hundinn með til Akureyrar
Gisting í nýstandsettum herbergjum á besta stað í bænum. Gott verð. Upplýsingar ...
 
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sérfræðingur
Sérfræðistörf
Starfsgreinasamband Íslands er stærsta l...
Hlutabréf til sölu í útflutningsfyrirtæki

Hlutabréf til sölu í útflutningsfyrirtæk...