Vefarinn kominn út í Bandaríkjunum

Halldór Laxness.

Halldór Laxness. mbl.is/Ólafur K. Magnússon

Vefarinn mikli frá Kasmír, eftir Halldór Laxness, hefur nú verið gefinn út í enskri þýðingu Philips Roughtons í Bandaríkjunum í fyrsta skipti. Fjallað er um bókina í bandaríska blaðinu Los Angeles Times í dag en þar kemur fram að á síðasta áratug hafa átta skáldverk eftir Laxness komið út í Bandaríkjunum.

Í grein um bókina segir rithöfundurinn Bill Holm, að Bandaríkjamenn séu stundum ekkert vissir um hvar eða hvað Ísland sé en í bókmenntaheiminum sé Ísland einskonar heilagt land þar sem lítil þjóð á hjara veraldar hafi framleitt merkar evrópskar bókmenntir í þúsund ár. Raunar megi færa rök fyrir því að tungumálið og bókmenntirnar hafi haldið þjóðinni á lífi - og tryggt henni sjálfstæði að mestu - í árþúsund. 

Þá segir Holm að Vefarinn mikli frá Kasmír hafi verið jarðýtan, sem Halldór Laxness notaði til að ryðja fyrsta veg íslenskra bókmennta inn í 20. öldina. Segir Holm að íslenskir rithöfundar hafi fullyrt við sig, að hvað svo sem útlendingum kunni að finnast um þessa merkilegu en rytjulegu bók, þá skilji þeir að hún hafi gert Íslendingum kleift að skrifa nútímabókmenntir; skrifa sig framhjá Íslendingasögunum.

Holm segir að Vefarinn sé ekki skynsöm bók. Í henni sé varla að finna það sambland af viðkvæmni og kaldhæðni sem einkenni stærstu verk Halldórs og einnig vanti kímnina. Það sé hins vegar mikil spenna í Vefaranum sem minni á hina óbeisluðu orku On the Road, eftir Jack Kerouac, þótt Halldór hafi væntanlega ekki skrifað bókina á eina langa pappírsrúllu. Vísar Holm til þess að Halldór hafi sjálfur sagt árið 1948 að helsti galli bókarinnar sé að hún hafi aldrei verið umskrifuð.

Umsögn LA Times um Vefarann mikla frá Kasmír 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Breyttar felgur 15" 6 gata f. Toyota eða Patrol t.d.
TS 15" breyttar felgur. Þær eru tæplega 18" breiðar með valsaða kanta frá GJJá...
Bílskúrssala.
Velkomin á bóka-, plötu- og flóamarkað að Melgerði 16, 108 Reykjavík. Opið alla...
Starcraft Fellihýsi með fortjaldi
Til sölu Starccraft Fellihýsi 9 ft árg 2000 ásamt nýlegu forjaldi ásett verð 69...
Yamaha FJR 1300
Fyrsta flokks og glæsilegt mótorhjól. Yamaha FJR 1300 ár 2007 ekið 4.000 km V...
 
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...