Borgað fyrir sjúkrarúmið

Álfheiður Ingadóttir.
Álfheiður Ingadóttir.

Sjúklingar sem koma á sjúkrahús geta átt von á að vera rukkaðir um innritunargjald, samkvæmt bandormsfrumvarpi sem forsætisráðherra hefur lagt fram. Áætlað er að þetta muni skila 360 milljónum króna til ríkisins en ákveðnir hópar verða þó undanþegnir gjaldinu.  

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, gagnrýndi þetta harðlega á þingi í morgun og sagði dapurlegt að fólk ætti að fara að greiða aðgöngumiða að sjúkrahúsum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert