Með fullfermi til Þýskalands

Ásbjörn RE var eini togarinn á sjó um hátíðirnar.
Ásbjörn RE var eini togarinn á sjó um hátíðirnar.

Ísfisktogarinn Ásbjörn RE er nú á leið til Þýskalands með fullfermi af fiski, um 150 tonn. Fiskinn stendur til að selja á fiskmarkaðnum í Bremerhaven í byrjun ársins.

Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu HB Granda.

Ásgeir RE var eini togari landsmanna sem var að veiðum um jólin og var uppistaða aflans góður gullkarfi. Einnig voru í lestinni um 20 tonn af ufsa. 

Kemur fram í fréttinni að  mikið hafi verið haft fyrir aflanum enda nánast kolvitlaust veður megnið af veiðiferðinni. „Á aðfangadag var brugðið á það ráð að leita vars undir Hólsbergi í nágrenni Keflavíkur og þar varði áhöfnin aðfangadagskvöldinu,“ er haft eftir Ólafi Einarssyni skipstjóra.

Skipið lét úr höfn í Reykjavík í morgun eftir að hafa tekið olíu og vistir. Ásbjörn RE fór síðast utan með afla á árinu 1994 eða fyrir bráðum hálfum öðrum áratug.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert