Lenti utan Reykjanesbrautar

Bifreiðin hafnaði utan Reykjanesbrautar, á milli akreina.
Bifreiðin hafnaði utan Reykjanesbrautar, á milli akreina. Júlíus Sigurjónsson

Enginn slasaðist þegar ökumaður bifreiðar missti stjórn á bíl sínum á Reykjanesbrautinni í Kúagerði á áttunda tímanum í kvöld. Bifreiðin lenti utan vegar, á milli akreinanna. Talið er að krapi á veginum hafi ollið því að maðurinn missti stjórnina. Bifreiðin skemmdist mikið og var flutt á brott með dráttarbíl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert