Fréttaskýring: Skuldin situr öll eftir þótt bíllinn sé tekinn

Bílasalar hafa undanfarna mánuði, allt frá því fyrir bankahrunið, séð það sem þeir kalla ljót dæmi um vörslusviptingar á bifreiðum. Mörgum fjármögnunarsamningum hefur verið rift síðustu mánuði, enda oft í erlendri mynt og hafa því hækkað með falli krónunnar.

Sveinbjörn R. Árnason hjá Bílamarkaðnum í Kópavogi segir að bílar séu teknir af fólki í greiðsluerfiðleikum og þeir verðmetnir niður úr öllu raunhæfu samhengi. Jafnvel allt að helming raunverðs í krónum talið. „Síðan er smurt á viðgerðarkostnaðaráætlun upp á tugi ef ekki hundruð þúsunda króna. Afföllum upp á 15% af matsverði er bætt við þar á eftir,“ segir Sveinbjörn. „Eftir stendur reikningur upp á milljónir, sem velt er yfir á skuldarann. Þetta kalla ég bílarán en ekki bílalán,“ bætir hann við.

Skjóta sig í fótinn

Atli Már Ingason, bifreiðasali hjá Netsölunni.is, tekur í sama streng. Hann segir engar skýringar að fá hjá fjármögnunarfyrirtækjum á því hvers vegna sumir bílar séu seldir upp í kröfur á jafnlágu verði og raun ber vitni. Hann sjái í störfum sínum hliðstæða bíla seljast á miklu hærra verði á sama tíma. „Þessi verð finnast hvergi nema á uppboðum hjá þessum félögum. Þeir eru sjálfir að ýta undir verðhrun á markaðnum og skjóta á endanum sjálfa sig í fótinn með því.“ Hann kveðst þekkja slík dæmi frá öllum bílafjármögnunarfyrirtækjum á markaðnum. Hann tekur sem dæmi Renault Mégane-bifreið sem stúlka ein keypti á 1,1 milljón á síðasta ári, með 800.000 króna láni frá Lýsingu. Skömmu síðar missti hún bílinn, sem var seldur upp í kröfuna á 160.000 krónur.

Sveinbjörn útskýrir að skuldurum bjóðist að setja eftirstöðvarnar á skuldabréf í krónum með veði í fasteign. „Þá er búið að festa gengishagnaðinn í krónum og lántakandinn situr eftir með sárt ennið.“

Annað mál sem vekur furðu er kostnaðurinn við skoðun á bílum sem hafa verið teknir úr vörslu fólks. Fyrir endursölu eru þeir verðmetnir hjá þar til bærum aðilum. „Ég hef séð svart á hvítu reikning frá bílalánafyrirtæki upp á 212.000 krónur fyrir verðmat á bíl sem var tekinn úr vörslu fólks. Þetta er í mesta lagi klukkustundar vinna, að meta eina bifreið. Þetta kallar maður óréttlæti á hæsta stigi,“ bætir Sveinbjörn við.

Þriðji maður fær mismuninn

Hann segir mikið óréttlæti viðhaft við matið, sem sé framkvæmt af fólki á launaskrá eða í einhverju samstarfi við lánafyrirtækin. Það fólk sé því hlutdrægir og óhæfir matsaðilar. Lántaki hafi ekkert um verðmat bílsins að segja, nema hann kalli til dómskvadda matsmenn með tilheyrandi kostnaði. „Ef lántaki heldur ekki uppi mótbárum innan fimm daga eftir móttöku bréfsins er litið á það sem samþykki.“

Þá segir Sveinbjörn það vekja furðu að þröngur hópur tengdra aðila fái að selja bíla bílalánafyrirtækjanna hratt og ódýrt, en um leið sé fáum boðið að bjóða í þá. „Þriðji aðili nær hagnaði við endursöluna, en eftir situr lántakandinn með eftirstöðvarnar.“

Hann spyr sig hvort það þjóni hagsmunum bílalánafyrirtækja að sækjast ekki eftir hæsta mögulega verði. Slíkir gerningar felli verð á bílamarkaðnum almennt og bíleigendur allir gjaldi í raun fyrir það.

Skuldin áfram þótt bíllinn sé seldur

Gögn sýna uppgjör á bílasamningi hjá SP fjármögnun. Þegar samningnum er rift 9. október vegna vanskila, og tekinn af skuldara með vörslusviptingu, eru eftirstöðvar tæpar fimm milljónir. Í uppgjörinu telur liðurinn „kostnaðarmatsskoðun“ 996.703 krónur og bætist við eftirstöðvarnar. Svo dregst söluverðmæti bílsins frá skuldinni. Söluverðið er tilgreint um 1,9 milljónir í uppgjörinu. Bíllinn, Lincoln Navigator jeppi, var hins vegar 5,2 milljóna króna virði hálfu ári fyrr og bílasamningurinn hljóðaði upp á 4,9 milljónir. Bíllinn var seldur upp í kröfuna en samt stendur eftir ríflega fjögurra milljóna króna skuld. Til er dæmi af Dodge jeppa sem keyptur var með láni frá Lýsingu hf. Bíllinn kostaði 5,2 milljónir, en lánið var fyrir 3,5 milljónum króna. Um hálfu ári síðar var samningnum rift og skuldarinn sviptur vörslurétti. Í uppgjöri samningsins var jeppinn aðeins metinn á 1,8 milljónir króna. Lánið, sem var í erlendri mynt, hækkaði í millitíðinni. Skuldin við Lýsingu er í dag um fimm milljónir, þrátt fyrir að bíllinn hafi verið tekinn og seldur upp í kröfuna.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert