Bjóða fram aðstoð vegna Icesave deilunnar
InDefence hópurinn býður fram aðstoð sína í samningaviðræðum við Breta vegna Icesave deilunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópnum.
Þar segir að hópurinn fagni umræðum á Alþingi í gær um þá ákvörðun bresku ríkisstjórnarinnar um að beita hryðjuverkalögum gegn Íslendingum þann 8. október 2008. Þessi afdrifaríka aðför að íslensku samfélagi hafi komið Íslendingum gersamlega í opna skjöldu og breytti erfiðri stöðu í efnahagslegt hrun.
„Það eru réttar áherslur íslenskra stjórnvalda að semja á nýjum forsendum um skuldbindingar Íslendinga vegna Icesave, enda ljóst að með beitingu hryðjuverkalaga gegn íslenskum stjórnvöldum sem og Landsbanka Íslands, þá rýrðu bresk stjórnvöld eignir íslenskra aðila erlendis sem og sköðuðu viðskiptahagsmuni óskyldra íslenskra fyrirtækja. Ljóst er að orðstír allra Íslendinga var dreginn í efa með því að setja okkur á lista með ógnarstjórnum eins og Norður-Kóreu, Al Kaida og Talibönum svo einhverjir séu nefndir.
Síðan um miðjan október 2008 hefur InDefence hópurinn unnið að því að vekja athygli erlendra stjórnvalda, innstæðueigenda og fjölmiðla á notkun breskra stjórnvalda á hryðjuverkalögum gegn íslenskum hagsmunum. InDefence hópurinn hefur líklega tekið á móti um fimmta tug fjölmiðla alls staðar að úr heiminum. Hópurinn hefur saknað upplýstrar umræðu um beitingu hryðjuverkalaganna á Alþingi og hefur undrast aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda þegar kemur að því að verja hagsmuni þjóðarinnar í þessu mikilvæga máli. Þess má geta að svo virðist sem að íslensk stjórnvöld hafi ekki enn komið mótmælum á framfæri til breskra stjórnvalda, né sent afrit af slíkum mótmælum til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og NATO. Það vekur ennfremur furðu okkar að engar beinar viðræður hafi farið fram á milli forsætisráðherra Íslands og Bretlands síðan að hryðjuverkalögunum var beitt þann 8. október síðastliðinn.
InDefence hópurinn vonast til þess að núverandi ríkisstjórn Íslands muni beita sér af meira afli við að verja hagsmuni þjóðarinnar gagnvart ólögmætum aðgerðum og ósanngjörnum kröfum breskra stjórnvalda. Hópurinn býðst jafnframt til þess að veita íslenskum stjórnvöldum aðstoð og ráðgjöf í þessu máli, ef það getur orðið að gagni,“ segir í tilkynningunni.
Bloggað um fréttina
-
Árni B. Steinarsson Norðfjörð Of seint að bjarga landinu - Óeirðir, götubardagar, vopnuð lögregla ... -
Sif Jónsdóttir Ný ríkisstjórn - nýjir samningar -
Þráinn Jökull Elísson Guð láti á gott vita. -
Þorsteinn Sverrisson Einfaldleikinn er bestur -
S i g u r ð u r Sigurðarson Fela InDefence að sjá algerlega um samingana? -
Vésteinn Valgarðsson Ekki mínar skuldir
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 8. maí 2009, Innlent Krefjast harðra mótmæla frá íslenskum stjórnvöldum
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Innlent Ár frá beitingu hryðjuverkalaga
- Föstudagur, 28. ágúst 2009, Innlent InDefence: Aum frammistaða stjórnvalda í Icesave
- Laugardagur, 10. janúar 2009, Innlent Stjórnvöld spara aura en kasta krónum
- Mánudagur, 16. mars 2009, Innlent Afhenda Bretum formleg mótmæli
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































