Ná fólki frá okkur með mútum eða öðru

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið rosalega iðinn við það að leita að einhverjum í Frjálslynda flokknum sem hugsanlega væri hægt að teyma yfir, hvort sem að það er með mútum eða einhverju öðru,“ sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins í Zetunni á mbl.is.

Guðjón Arnar nefndi brotthvarf Gunnars Örlygssonar og Jóns Magnússonar yfir í þingflokk Sjálfstæðisflokksins og vistaskipti Karenar Jónsdóttur í bæjarstjórn Akraness.

„Það er einfaldlega þannig að það hefur verið mikið keppikefli hjá Sjálfstæðisflokknum, og ég skil það, að reyna að kippa fólki frá Frjálslynda flokknum yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Ég er ekki að segja að Karen Jónsdóttur hafi verið mútað þegar hún ákvað að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórn Akraness eða neinum öðrum. En það hefur iðulega gerst. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt sig í líma við að ná fólki frá okkur yfir til sín,“ sagði Guðjón Arnar og bætti bvið að hann vissi að Jón Magnússon hefði tekið ákvörðun um vistaskiptin einn og sjálfur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert