Nýtt örnefnaskilti afhjúpað

Sögukortið.
Sögukortið.

Grindavíkurbær og Saltfisksetrið munu á morgun klukkan 13 taka í notkun nýtt sögu- og örnefnaskilti á Gerðavöllum ofan við Stórubót. Af því tilefni er bæjarbúum og gestum boðið til  gönguferðar um Vellina og næsta nágrenni.

Á skiltinu er uppdráttur af svæðinu með helstu minjum og örnefnum, auk texta um svonefnt Junkaragerði, viðverustað þýskra fiskimanna á 15. öld, Virki Englendinga þar sem lokaorrusta Grindavíkurstríðsins fór fram 10. júní árið 1532.

Um er að ræða 6. skiltið í röð slíkra í Grindavík. Fram kemur á vefnum Ferlir.is, að sjöunda skiltið verði tekið í notkun við Hraun austan Grindavíkur í september. Með því hafi meginhluti þéttbýlishverfa Grindavíkur verið teiknaður upp m.t.t. sýnilegra og sögulegra minja í tengslum við helstu örnefnin. Hugmyndin sé, að nýta svo efnið til útgáfu fyrir þá sem vilja eignast uppdrættina á kortunum svo og til kennslu í grunnskólum bæjarins.

Ferlir.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert