Ölvun og erill hjá lögreglu i Reykjavík

mbl.is/Július

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru nítján einstaklingar í haldi lögreglu eftir nóttina. Samkvæmt upplýsingum lögreglu bar sérstaklega mikið á ölvun á almannafæri.

Þá var brotist inn í Öskjuhlíðaskóla og á pítsustað við Dalveg. Tveir einstaklingar eru í haldi lögreglu í tengslum við hvort mál.

Einnig voru þrír einstaklingar handteknir eftir að þeir voru stöðvaðir á stolnum bíl en auk nytjastuldar á bílnum er fólkið grunað um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert