Reikna með rekstri Þórs

Varðskipið Þór á sjó
Varðskipið Þór á sjó mbl.is

Varðskipið Þór verður væntanlega afhent í mars 2010. Ný Dash-8-flugvél Landhelgisgæslunnar verður afhent 27. júní nk. Landhelgisgæslan hefur þurft að gæta mikils aðhalds í rekstri. Dregið var úr úthaldi varðskipanna og nýverið var þremur þyrluflugmönnum sagt upp. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, var því spurður hvort búið væri að tryggja rekstur nýja varðskipsins.

„Fjárlög ársins 2010 eru ekki tilbúin þannig að við vitum ekki hvernig því verður háttað. Við reiknum samt fastlega með að skipið verði í rekstri,“ sagði Georg. Samkvæmt landhelgisgæsluáætlun, sem ríkisstjórnin samþykkti 2007, er talið nauðsynlegt að reka minnst þrjú varðskip. Georg sagði að gengið hefði verið út frá því að nýi Þór bættist við flotann en fyrir eru varðskipin Ægir og Týr.

„Það hefur ekkert breyst í þeim efnum, nema í þá átt að við þurfum að reka enn fleiri skip,“ sagði Georg. „Hins vegar gerum við okkur grein fyrir því að aðstæður á Íslandi eru ákaflega sérstakar nú og við munum sníða okkur stakk eftir því. Fjárveitingar til Landhelgisgæslunnar vegna 2010 liggja ekki fyrir, ekki frekar en til annarra stofnana. Þegar þær liggja fyrir munum við laga reksturinn að þeim.“

Reiknað er með að hægt verði að reka varðskipið Þór með 18 manna áhöfn líkt og er á varðskipunum Ægi og Tý. Það er lágmarksáhöfn, að sögn Georgs. Hann telur að reksturskostnaður nýja varðskipsins verði mjög áþekkur og reksturskostnaður gömlu skipanna. „Það er allt önnur og betri orkunýting í þessu nýja skipi, enda er þetta 40 árum yngri hönnun. Vélarnar eru miklu sparneytnari en þær sem við notum í dag,“ sagði Georg.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert