Landsvirkjun á athugunarlista

Ein af aflvélum Kárahnjúkavirkjunar gangsett.
Ein af aflvélum Kárahnjúkavirkjunar gangsett. Steinunn Ásmundsdóttir

Landsvirkjun er komin á svonefndan athugunarlista matsfyrirtækiins Standard & Poors sem telur stöðu fyrirtækisins hafa veikst og svo geti farið að lánshæfismat verði talið neikvætt.

Langtímaeinkunn Landsvirkjunar er nú BBB- og til skamms tíma A-3.  Óvissa um það hvort íslenska ríkið hafi burði til að styðja við rekstur Landsvirkjunar er talin hafa áhrif til lækkunar lánshæfimatsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert