Hjúkrunarfræðingar úr BHM

Elsa B. Friðfinnsdóttir.
Elsa B. Friðfinnsdóttir.

Samþykkt var með 53 atkvæðum gegn 2 á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í dag, að ganga úr Bandalagi háskólamanna. Var stjórn félagsins falið að ganga frá úrsögninni.

Í ályktun, sem samþykkt var á fundinum, segir að stjórn félagsins skuli þegar hefja undirbúning viðbragða við því ástandi sem skapist vegna úrsagnar og núverandi aðildar félagsmanna að sjóðum BHM. 

Elsa B. Friðfinnsdóttir var endurkjörin formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til 2 ára. Elsa var sjálfkjörin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert