Tollar á útfluttar iðnaðarvörur falla niður

Fríverslunarsamningur milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Kanada öðlast gildi hinn 1. júlí næstkomandi. Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss eru aðilar að EFTA. Frá sama tíma öðlast gildi tvíhliða landbúnaðarsamningar milli einstakra EFTA-ríkja og Kanada, sem gerðir voru í tengslum við fríverslunarsamninginn, þar á meðal á milli Íslands og Kanada. Frá þessu er greint í Stiklum, vefriti utanríkisráðuneytisins.

Samningurinn mun hafa í för með sér niðurfellingu tolla á iðnaðarvörum sem Ísland framleiðir og flytur út til Kanada. Í staðinn veitir Ísland Kanada tollfrjálsan aðgang fyrir hvers kyns iðnaðarvörur.

Verðmæti útflutnings frá Íslandi til Kanada nam um 2,2 milljónum króna á árinu 2008 og var það um 0,7% af heildarinnflutningi ársins, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Verðmæti innflutnings frá Kanada í fyrra nam um 5,3 milljörðum, en það svarar um um 1,0% af heildarinnflutningi til Íslands á síðasta ári.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert