Maraþon við Mývatn

Guðmundur Guðnason fagnar sigri við Mývatn í dag.
Guðmundur Guðnason fagnar sigri við Mývatn í dag. mbl.is/Birkir Fanndal

Vel heppnað maraþonhlaup lauk nú síðdegis við jarðböðin í Mývatnssveit í sól og hlýrri sunnan golu. Það voru 38 sem þreyttu maraþonhlaup að þessu sinni en auk þess hlupu 52 hálfmaraþon, 75 fóru 10 kílómetra og 41 hljóp 3 kílómetra.

Sigurvegari í maraþonhlaupinu var Guðmundur Guðnason en tími hans var 3:04:40 klukkustundur.

Fjölmenni var að fylgjast með hlaupinu enda veðrið eins og best verður á kosið og framkvæmdin tókst vel.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert