Rætt um Icesave á Alþingi
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þráspurði Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, á Alþingi í dag hver staða mála í samskiptum við Breta verður ef svo fer að ekki reynist meirihlutastuðningur við samkomulagið um Icesave.
Steingrímur svaraði að þingið muni væntanlega fjalla um þessa spurning þegar frumvarp um málið kemur fram. Fram kom hjá honum að búið sé að aflétta frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi.
Steingrímur sagði, að ríkisstjórnin hefði haft fullt samningsumboð frá Alþingi að ganga frá þessum samningum og skipað samninganefnd, sem leiddi málið til lykta. Steingrímur sagðist myndu leggja fram frumvarp um málið í ríkisstjórn og óska eftir heimild til að leggja það fram stjórnarfrumvarp í trausti þess að það njóti stuðnings á Alþingi. Eftir það væri málið í höndum Alþingis.
Bjarni sagði, að því hefði ítrekað verið hafnað af hálfu stjórnvalda að svara því hvort gengið hafi verið úr skugga um að samningurinn hefði meirihlutastuðning á þinginu.
Áætlun um gjaldeyristekjur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fjallaði einnig um Icesave-málið í fyrirspurnartíma þingsins og spurði Steingrím J. Sigfússon hvort gerð hafi verið áætlun um hvernig Íslendingar geti skapað nægilegar gjaldeyristekjur á næstu 15 árum til að standa undir Icesave-samkomulaginu.
Sagði Sigmundur Davíð, að þriðja heims ríki hefðu lent í þeirri gildru í olíukreppunni á áttunda áratug síðustu aldar, að taka lán í gjaldeyri sem þau gátu síðan ekki staðið undir og hefði fest þau í fátæktargildru. „Það er ljóst, að það er allt annað fyrir ríki að skuldsetja sig í erlendri mynt en sinni eigin mynt," sagði Sigmundur Davíð.
Steingrímur sagði ljóst, að það verði þröngt um gjaldeyristekjur og aðrar tekjur í þjóðarbúinu ef heimsenda- og svartnættisspár formanns Framsóknarflokksins gengju eftir. Hitt væri ljóst, að það væri eitt mikilvægasta verkefni næstu missera að fá mynd af heildarstöðunni og hvernig íslenskur þjóðarbúskapur réði við þau áföll, sem dunið hefðu yfir. Unnið væri að því að sjá til þess að greiðslubyrði og vaxtabyrði dreifist þannig að það sé viðráðanlegt fyrir þjóðarbúskapinn.
Sagði Steingrímur að hollensk stjórnvöld hefðu m.a. boðið fram aðstoð sína við þetta.
Bloggað um fréttina
-
Baldvin Jónsson Í DAG HEFÐI ÁTT AÐ HANDTAKA MIG VÆNTANLEGA -
Óðinn Þórisson Hvað ef ? -
Júlíus Björnsson Orðspor hins almenna Íslendings -
Jón Aðalsteinn Jónsson Ráðþrota ríkisstjórn -
Guðmundur Andri Skúlason Skammarlegur hræðsluáróður Jóhönnu & Co. -
Sigurður Sigurðsson Ég treysti á að Sjálfstæðisflokkurinn felli þennan samning !!! -
Axel Jóhann Axelsson Steingrímur neitar að svara
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 8. júní 2009, Innlent Hvert klúðrið hefur rekið annað
- Mánudagur, 19. október 2009, Innlent Umræða á Alþingi um AGS
- Mánudagur, 19. október 2009, Innlent Sakar Steingrím um kúvendingu
- Fimmtudagur, 18. júní 2009, Innlent Forsætisráðherra magnaði upp draug
- Mánudagur, 13. júlí 2009, Innlent EES-samningurinn var í húfi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































