Samfylkingin auglýsir eftir framkvæmdastjóra

Samfylkingin auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra flokksins. Sigrún Jónsdóttir hefur gegnt starfinu frá því í vetur.

Fram kemur á heimasíðu Samfylkingarinnar, að í starfinu felist m.a. dagleg stjórnun og ábyrgð á rekstri aðalskrifstofu  flokksins, framkvæmd ákvarðana stjórnar og framkvæmdastjórnar flokksins,
stefnumótun, starf málefnanefnda og stjórnun þróunarverkefna
 og skipulag á  kynningarstarfi flokksins, útgáfu og samskiptum við fjölmiðla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert