Funda á Austurvelli

Hörður Torfason verður fundarstjóri á fundinum í dag.
Hörður Torfason verður fundarstjóri á fundinum í dag. Ómar Óskarsson

Samtökin Raddir fólksins hafa boðað til útifundar á Austurvelli í dag kl. 15. Samtökin krefjast þess að Icesave-samningurinn verði stöðvaður og vilja mótmæla „sinnuleysi stjórnvalda í málefnum heimila og fyrirtækja." Fundarstjóri verður Hörður Torfason.

Þetta verður 30. fundur Radda fólksins á Austurvelli. Í tilkynningu frá samtökunum segir að þau vilji að „dómskerfið taki á hvítflibbaglæpamönnum."

Ræðumenn verða þau Andrea Ólafsdóttir, stjórnarkona í Hagsmunasamtökum Heimilanna og Jóhannes Þ. Skúlason, sagnfræðingur og grunnskólakennari.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert