Rólegt í umdæmi lögreglu Selfoss

Fallegt var um að litast á Flúðum í morgun. Hitinn …
Fallegt var um að litast á Flúðum í morgun. Hitinn um 20 stig og fjölmargir hafa frestað heimför um nokkrar klukkustundir. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson

Afar rólegt var í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í nótt, þrátt fyrir mikinn fjölda gesta, t.a.m. á Flúðum. Varðstjóri telur að gestir hafi líklega verið búnir með púðrið en aðfaranótt sunnudags var afar erilsöm. Hann er hins vegar undir það búinn að einhverjar tilkynningar berist þegar líður á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert