Fundu landa í Árnessýslu

Lögreglan á Selfossi fór í húsleitir á tveimur stöðum í sýslunni á föstudag.  Á báðum stöðum fannst tilbúinn landi á flöskum en tæki til framleiðslu hans á öðrum staðnum.

Lögreglan segir, að alls sé um að ræða nærri 30 lítra af tilbúnum landa og grunar lögreglu að hann hafi verið ætlaður til sölu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert