Réttir fóru vel fram

GÖNGUR og réttir standa nú sem hæst.
GÖNGUR og réttir standa nú sem hæst. Sigurður Sigmundsson

Réttir voru á nokkrum stöðum í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli um helgina og fór allt vel fram.  Réttardansleikur var á Kirkjubæjarklaustri í gærkvöldi en margt var um manninn og skemmtu allir sér konunglega, að sögn varðstjóra lögreglunnar.  Ekkert var um illdeilur eða slagsmál. 

Að vísu náði einn gestanna að fara af stað á bifreið sinni eftir að hafa neytt áfengis, en hann var stöðvaður og fær mál hans venjubundna afgreiðslu, þ.e. sekt og ökuleyfissvipting bíður hans.   

Tveir menn voru handteknir og játuðu að hafa ætlað í sundlaugina á Kirkjubæjarklaustri.  Þeir höfðu farið inn í Íþróttahúsið og ætluðu að fara í sundlaugina en kerfi með upptöku er í lauginni.   Þeir lögðu á flótta og voru handteknir daginn eftir.  

Lögreglan á Hvolsvelli stóð 21 ökumann að of hröðum akstri í vikunni sem leið en sá sem hraðast ók var á 134 km hraða austan við Krikjubæjarklaustur.  Hann fékk 70 þúsund króna sekt og nýtti sér afsláttinn og greiddi á staðnum 52.500.- krónur. 

Frá áramótum hefur lögreglan á Hvolsvelli stöðvað 1.328 ökumenn fyrir að aka of hratt í umdæminu.  Alvarlegum slysum hefur fækkað stórlega í umdæminu frá því að lögreglan tók upp hert eftirlit með of hröðum akstri, að sögn varðstjóra lögreglunnar á Hvolsvelli. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert