Stofna Fjárfestingasjóð Íslands í október

Samþykkt var á fjölmennum fundi fulltrúa lífeyrissjóða í Reykjavík í dag að boðað yrði til stofnfundar nýs fjárfestingarfélags lífeyrissjóðanna. Stefnt er að stofnfundi í október. Vinnuheiti félagsins er Fjárfestingarsjóður Íslands.

Gerð var grein fyrir hlutverki, tilgangi og starfsemi fjárfestingarsjóðsins og drögum að skilmálum hans sem fyrir liggja frá hendi starfshóps á vegum lífeyrissjóðanna. Það er síðan á valdi stjórnar hvers lífeyrissjóðs að ræða málið í eigin ranni og taka afstöðu til þess á næstu vikum hvort viðkomandi sjóður tekur þátt í að stofna Fjárfestingarsjóð Íslands.

Gert er ráð fyrir að hver og einn lífeyrissjóður skuldbindi sig í upphafi til þátttöku í verkefninu með því að ábyrgjast tiltekið framlag sem nýi fjárfestingarsjóðurinn kallar síðan eftir á næstu þremur til fjórum árum þegar fyrir liggja ákvarðanir um fjárfestingar af hans hálfu. Engar upphæðir voru nefndar á fundinum í dag, hvorki um framlög einstakra lífeyrissjóða né um áformað heildarumfang nýja fjárfestingarsjóðsins.

Fram kom að gert væri ráð fyrir því að Fjárfestingarsjóður Íslands eignaðist hluti í íslenskum fyrirtækjum í öllum greinum atvinnulífsins, einkum þeim sem lent hefðu í erfiðleikum vegna efnahagshrunsins en ættu sér vænlegan rekstrargrundvöll til lengri tíma. Sérstaklega yrði horft til fyrirtækja sem öfluðu gjaldeyristekna eða spöruðu gjaldeyri með starfsemi sinni.

Fjárfestingasjóður Íslands mun ekki taka þátt í fjárfestingum sem orka tvímælis út frá almennum siðareglum. Sjóðurinn mun viðhafa góða stjórnunarhætti og sýna samfélagslega ábyrgð og ábyrgð í umhverfismálum í starfi sínu. Enn fremur kom fram í kynningunni að lögð yrði áhersla á að fyrirtæki, sem fjárfest er í, störfuðu samkvæmt lögum og reglum, virtu alþjóðlega sáttmála um mannréttindi, réttindi launafólks, barnavinnu og umhverfisvernd. Þá yrði í fjárfestingum litið til reglna OECD, Viðskiptaráðs Íslands, Kauphallar Íslands og samtaka launafólks og atvinnurekenda um stjórnunarhætti fyrirtækja og til reglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar.

Markmiðið með starfsemi Fjárfestingasjóðs Íslands er að ná vænlegri arðsemi á fjárframlög hluthafa, þ.e. lífeyrissjóðanna. Sérstakt ráðgjafarráð mun marka fjárfestingastefnu sjóðsins að tillögu sjóðsstjórnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert