Hættir eftir 17 ára starfsemi

Ilmvatn frá Max Mara.
Ilmvatn frá Max Mara. mbl.is/Árni Sæberg

Auglýsingar hafa að undanförnu heyrst frá verslunum, sem boða útsölur vegna þess að búðirnar séu að hætta. Þeirra á meðal er fataverslunin Max Mara við Hverfisgötu í Reykjavík. Verslunin er að hætta eftir 17 ára starfsemi.

Samtök verslunar og þjónustu segjast merkja aukna uppgjöf með íslenskra atvinnurekenda og því megi búast við að fleiri fyrirtæki leggi upp laupana næstunni.

MaxMara auglýsir í Morgunblaðinu í dag og þar kemur fram að rýmingarsalan standi fram á sunnudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert