Skóflustunga metanólverksmiðju

Sólarlag við Hitaveitu Suðurnesja, við Svartsengi.
Sólarlag við Hitaveitu Suðurnesja, við Svartsengi. Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Fyrsta skóflustungan að metanólverskmiðju í Svartsengi í landi Grindavíkur verður tekin á morgun. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra verða viðstaddir ásamt George Olah sem hlaut Nóbelsverðlaun í efnafræði 1994.

Á vef Grindavíkur kemur fram að Hitaveita Suðurnesja hf. og fyrirtækið Carbon Recycling International ehf. hafi undirritað samstarfssamning um að reka verksmiðju sem breytir koltvísýringsútblæstri frá jarðvarmavirkjuninni við Svartsengi í metanól, fljótandi eldsneyti fyrir bíla og önnur faratæki.

Verksmiðjan verður sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Umhverfismati fyrir verksmiðjuna er þegar lokið og verksmiðjan er komin á deiliskipulag Grindarvíkurbæjar. Framleiðslugeta þessarar verksmiðju er fjórar milljónir lítra. Framleiðslan á að hefjast í lok næsta árs.

Verksmiðjan mun heita „George Olah CO2 to Renewable Methanol Plant“. Um 50 manns munu koma að byggingu verksmiðjunnar.

Vefur Grindavíkur

Verksmiðjan mun bera nafn George Olah Nóbelsverðlaunahafa í efnafræði 1994.
Verksmiðjan mun bera nafn George Olah Nóbelsverðlaunahafa í efnafræði 1994.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert